Engin vandamál – bara lausnir
Við hjá Garðaþjónustu Sigurjóns leggjum metnað okkar í að gera umhverfið fallegra og aðgengilegra allan ársins hring. Með áratuga reynslu og öflugan tækjakost sjáum við um allt frá reglulegri garðumhirðu og garðslætti yfir í sérhæfðari verkefni eins og hellulagnir og háþrýstihreinsun. Við leggjum áherslu á snyrtimennsku og áreiðanleika í hverju verki.

Umboðsaðili FJ Dynamics
Garðaþjónusta Sigurjóns býður upp á FJDynamics slátturóbóta sem tryggja fullkominn slátt allan sólarhringinn. Þráðlaus tækni og GPS-stýring skila nákvæmri og faglegri lausn fyrir heimili og fyrirtæki án nokkurs jarðrasks.
Þjónusta
Við tökum að okkur fjölbreytt verkefni fyrir einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki.

Kynntu þér Garðaþjónustu Sigurjóns
Við leggjum metnað í það sem við gerum. Hér getur þú nálgast bæklinginn okkar og séð nákvæmlega hverju við getum bætt við þitt umhverfi.
Umsagnir
Við kjósum að láta verkin tala og erum gríðarlega stolt af árangri okkar í gegnum árin og frábærum ummælum viðskiptavina.
Góð þjónusta og ég yfir mig ánægð með garðinn eftir að þeir komu, klipptu tré, beðahreinsuðu og stéttahreinsuðu.
Ólafia Lára Ágústsdóttir
Helluhreinsun og háþrýstiþvottur. Röskir starfsmenn Garðaþjónustunnar skiluðu þarna virkilega vel unnu verki. Gef þeim mín bestu meðmæli.
Sigríður Pálmadóttir