Alhliða garðaþjónusta fyrir einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki

Allt sem þarf til að halda garðinum í toppformi, vetur, sumar, vor og haust.

Slátturóbótar til sölu og leigu

Öflugir róbótar sem henta henta bæði heimagörðum og stærri svæðum.

Trjáklippingar

Við bjóðum faglega snyrtingu á trjám og runnum sem setur fallegan svip á garðinn.

Engin vandamál – bara lausnir

Við hjá Garðaþjónustu Sigurjóns leggjum metnað okkar í að gera umhverfið fallegra og aðgengilegra allan ársins hring. Með áratuga reynslu og öflugan tækjakost sjáum við um allt frá reglulegri garðumhirðu og garðslætti yfir í sérhæfðari verkefni eins og hellulagnir og háþrýstihreinsun. Við leggjum áherslu á snyrtimennsku og áreiðanleika í hverju verki.

Umboðsaðili FJ Dynamics

Garðaþjónusta Sigurjóns býður upp á FJDynamics slátturóbóta sem tryggja fullkominn slátt allan sólarhringinn. Þráðlaus tækni og GPS-stýring skila nákvæmri og faglegri lausn fyrir heimili og fyrirtæki án nokkurs jarðrasks.

Þjónusta

Við tökum að okkur fjölbreytt verkefni fyrir einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki.

Kynntu þér Garðaþjónustu Sigurjóns

Við leggjum metnað í það sem við gerum. Hér getur þú nálgast bæklinginn okkar og séð nákvæmlega hverju við getum bætt við þitt umhverfi.

Umsagnir

Við kjósum að láta verkin tala og erum gríðarlega stolt af árangri okkar í gegnum árin og frábærum ummælum viðskiptavina.

Icon fyrir quote

Félagarnir Valur og Sigurjón fá mín bestu meðmæli þegar kemur að hesthúsaþrifum. Allt sem þeir sögðu stóðst upp á 10 og hesthúsið aldrei verið eins hreint og fínt eins og eftir þeirra vinnu. Takk fyrir mig

Guðrún Sch. Thorsteinsson

Icon fyrir quote

Við getum mælt með þjónustunni hans Sigurjóns! Hann kom eins og kallaður og mótaði gróðurinn í garðinum hjá okkur, klippti burt dautt og gaf okkur góð ráð.
Mæli með!

Jóhanna Svala

Scroll to Top