Niðurfallahreinsun
Haltu niðurföllum opnum allan ársins hring
Garðaþjónusta Sigurjóns býður upp á öfluga þjónustu við hreinsun og viðhald á niðurföllum, brunnum og ristum fyrir húsfélög, fyrirtæki og einstaklinga. Stífluð eða frosin niðurföll geta valdið miklu tjóni ef vatn kemst ekki leiðar sinnar, sérstaklega í leysingum eða mikilli rigningu. Við búum yfir sérhæfðum tækjabúnaði til að tryggja að frárennsliskerfi virki sem skyldi, hvort sem er að sumri eða vetri.
