Garðaþjónusta Sigurjóns
Garðaþjónusta Sigurjóns sinnir fjölbreyttri garðþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og vinnur fyrir einstaklinga, fyrirtæki, húsfélög og sveitarfélög.
Við komum að öllu sem viðkemur görðum og útisvæðum, allt frá hönnun og framkvæmdum til reglulegs viðhalds.
Fyrirtækið var stofnað árið 2019 af Sigurjóni og byggir starfsemin á fagmennsku, metnaði og ástríðu fyrir vel hirtu og fallegu umhverfi. Fljótlega gekk Valur, frændi hans, til liðs við reksturinn og hafa þeir síðan starfað saman með sameiginlega sýn um vandaða vinnu og góða þjónustu.
Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og lausnamiðaða nálgun og vinnum með aðferðir sem standast íslenskar aðstæður. Markmið okkar er að skapa og viðhalda útisvæðum sem eru bæði falleg og hagnýt til lengri tíma, allt árið um kring.
Unnið af fólki sem kann sitt verk
Hjá Garðaþjónustu Sigurjóns vinnur fólk sem er vant því að vera úti við og sinna görðum við ólíkar aðstæður. Unnið er með höndunum, með reynslu úr daglegri vinnu og virðingu fyrir umhverfinu sem verið er að vinna í. Garðarnir fá tíma og athygli sem skilar sér í snyrtilegu og heilbrigðu útisvæði.
