Við sjáum um að fjarlægja allt sem á ekki heima í garðinum svo umhverfið verði snyrtilegt á ný. Við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð svo gróðurinn fái að njóta sín.
Beðahreinsun Við hreinsum beð, fjarlægjum illgresi og snyrtum kanta. Við getum líka frískað upp á beðin með því að bæta við sandi, mold eða möl, allt eftir því hvað garðurinn þinn þarf.
Laufhreinsun Við hreinsum lauf úr beðum, grasflötum og þakrennum svo garðurinn sé hreinn og aðgengilegur.
Garðúðun og eitrun Við sjáum um faglega úðun gegn skordýrum og illgresi. Við notum viðurkennd efni og vinnum samkvæmt ströngustu kröfum.