Trjáfellingar

Við fellum tré af öryggi og ábyrgð

Hvort sem tréð skyggir á sólina, er orðið of stórt eða skapar hættu, þá erum við með réttu tækin og þekkinguna til að fella það á öruggan hátt. Trjáfellingar krefjast skipulagðra vinnubragða, sérstaklega þegar unnið er við þröngar eða krefjandi aðstæður.

Fellum tré af öllum stærðum og gerðum.
Erum vel tækjum búin og notum viðeigandi búnað
Sjáum um flutning og förgun efnis að verki loknu

Trjáfellingar við þröngar aðstæður

Oft standa tré nálægt húsum, rafmagnslínum eða ofan í viðkvæmum gróðri. Í stað þess að fella tréð í heilu lagi, þá klifrum við upp eða notum körfubíl til að saga það niður í litlum pörtum. Hverri grein er slakað varlega niður svo ekkert skemmist.

Tréð tekið niður í smærri pörtum.
Hlífum fasteignum og gróðri.
Erum með fullar ábyrgðartryggingar.

Við fjarlægjum stubbinn

Þegar tréð er fallið situr stubburinn oft eftir. Við bjóðum upp á stubbatætingu til að fræsa stubbinn niður fyrir yfirborðið svo hægt sé að tyrfa yfir eða planta nýju strax.

Fræsum stubbinn niður fyrir yfirborð jarðar.
Notum léttar vélar sem hlífa grasflötinni.
Sjá nánar um stubbatætingu

Traust garðaþjónusta allan ársins hring!

Fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu

547 7900
Sendu okkur fyrirspurn
Scroll to Top