Elínarlundur
Samfélagsábyrgð í verki
Hjá Garðaþjónustu Sigurjóns vinnum við af ábyrgð gagnvart umhverfinu. Þegar tré eða runnar eru felld eða fjarlægð í verkefnum okkar, gróðursetjum við ný í staðinn. Þannig vegum við upp á móti áhrifum starfseminnar og leggjum okkar af mörkum til framtíðar.
Í Höfðaskógi hjá Skógrækt Hafnarfjarðar höfum við gróðursett þúsundir trjáa í lundinum sem við köllum Elínarlund. Þar erum við að rækta skóg og byggja upp útivistarsvæði sem fær að vaxa og þróast með tímanum.
Elínarlundur er hluti af samfélagsábyrgð Garðaþjónustu Sigurjóns og endurspeglar þá nálgun að vega upp á móti trjáfellingum með markvissri gróðursetningu.
Viltu heimsækja Elínarlund?
