Er veturkonungur mættur

Við sjáum um snjóinn svo þú þurfir þess ekki

Leyfðu okkur að sjá um vetrarþjónustuna. Við tryggjum öryggi og gott aðgengi þegar snjór og hálka láta á sér kræla. Garðaþjónusta Sigurjóns er vel tækjum búin til að sinna öllum vetrarverkum fljótt og örugglega.

Fyrir alla: Þjónustum einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki.
Áreiðanleiki: Við mætum þegar þess þarf.
Tækjabúnaður: Öflug tæki fyrir stór og smá verkefni á höfuðborgarsvæðinu.

Öryggi yfir vetrartímann

Með réttri vetrarþjónustu er hægt að draga úr slysahættu og tryggja aðgengi þegar aðstæður eru erfiðar. Markmiðið er einfalt, örugg leið fyrir fólk og farartæki yfir vetrartímann.

Öryggið á oddinum í hálkunni

Hálka getur myndast skyndilega og skapað slysahættu á augabragði. Við fylgjumst náið með veðri og bregðumst hratt við með söltun og söndun til að tryggja að plön og gönguleiðir séu öruggar fyrir gangandi og akandi.

Fyrirbyggjandi: Söltum og söndum tímanlega til að hindra hálkumyndun.
Betra aðgengi: Höldum bílastæðum og tröppum auðum og öruggum.
Slysavarnir: Minnkar líkur á byltum og óhöppum verulega.

Snjómokstur

Greiðfær leið í vinnu og skóla. Þegar snjórinn hleðst upp skiptir öllu máli að halda leiðum opnum. Við ryðjum helstu samgönguleiðir, bílaplön og innkeyrslur svo daglegt líf gangi sinn vanagang, jafnvel í þungum snjó.

Hröð viðbrögð: Mokum snjó af stígum og plönum áður en hann verður til vandræða.
Snyrtilegt umhverfi: Göngum frá snjónum þannig að hann þvælist ekki fyrir.
Fyrir bíla og fólk: Tryggjum aðgengi fyrir íbúa, starfsfólk og viðskiptavini.

Snjóblástur

Í miklum snjóþyngslum dugar mokstur stundum skammt. Þá notum við öfluga snjóblásara til að fjarlægja snjóinn og blása honum lengra í burtu. Þetta er skilvirkasta leiðin til að halda stórum svæðum opnum þegar veturinn er sem harðastur.

Skilvirkni: Fjarlægjum mikið magn af snjó á skömmum tíma.
Betri nýting: Blásum snjónum burt svo hann taki ekki pláss á bílaplaninu.
Öflug tæki: Ráðum við erfiðar aðstæður og þungan snjó.

Traust garðaþjónusta allan ársins hring!

Fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu

540 7900
Sendu okkur fyrirspurn
Scroll to Top